|
|
29.05.2006 20:31:59 / glinglo
Að blogga hér...
Komin aftur á gamla bloggið.. Ætla að breyta því og gera það
flott!
Síðan er á gloin.blogspot.com
Velkomin þangað 
»
14.05.2006 18:20:23 / glinglo
Síðast þegar ég bloggaði var ég svo þreytt að ég stóð varla í
fæturna, við vorum undirmönnuð í búðinni og það var allt kreisí að
gera..... Og þá átti eftir að vinna heilan kreisí sunnudag, rúmar
12 klukkustundir. Veðrið um síðustu helgi var líka þannig að mann
langaði mest að loka búllunni og fara og njóta þess að láta
sólina sleikja sig og verða brúnn og sætur En það var ekki hægt,
samt á sunnudeginum fékk ég Binna (verslunarstjórann) til að koma
og leysa mig af í 2 klst, hún Hrefna amma mín átti nefnilega afmæli
en hún varð 85 ára og af því tilefni hittist STÓRfjölskyldan og
samgladdist með henni Hún er ekkert smá sæt hún amma mín, ég gaf
henni harðfisk og hún fór strax að borða hann Algert yndi Fór
svo og kláraði að vinna og fór heim og náði varla að leggjast uppí
rúm áður en ég sofnaði! Z! Sjaldan verið eins uppgefin!
Mánudagur: Fór í mömmó Var að passa litlu sætu Þórey Erlu í
rúma 2 tíma og ég fór með hana í Smáalind og athyglin sem maður
fékk! (eða sko ekki ég beint) heldur hún sætalína Hún er svo
yndisleg og mikil pæja Fór svo og vann um kvöldið rúmar 2 klst
(var að borga Binna tilbaka fyrir sunnudaginn)
Þriðjudagur: Vinna, man ekki meira...
Miðvikudagur: Vinna og svo ekkert merkilegt..
Fimmtudagur: Fór í handsnyrtingu um morguninn, Emilía frænka er
í Snyrtiskóla Kópavogs og vantaði módel í handsnyrtingu og ég dreif
mig sé sko ekki eftir því, þetta var snilld og hendurnar
alveg silkimjúkar eftir Takk Emilía fór svo í bæinn með Örnu
og minnstu skvísunni hennar Ég verslaði aðeins í Next og fékk
rós að launum, þeir voru að opna stærri búð og þetta var svona
kaupauki! Gaman að því! Vann svo 14-19, fór svo á e-a kynningu í
vinnunni kl 20-22:00.... Bara gaman !! Svo.. heimsótti ég ömmu í
rétt um klukkutíma.. Alltaf svo gaman að droppa við hjá henni
Við erum líka svo rosalega góðar vinkonur að það er æðislegt Lov
U amma Svo var það bara bælið sem beið 
Föstudagur: Vann frá 8-17...
HELGARFRÍ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Fyrsti frídagurinn í maí
framundan..... Horfði á Philadelphia um kvöldið í góðum félagskap
og svo var bara farið ekkert svo seint að sofa 
Laugardagur Sofið næstum út! Ég átti tíma í klippingu klukkan
11 og var því mætt niðrá Capilli klukkan 10:55 Ég var klippt og
sett í mig strípur og núna er hárið mitt mjög breytt en mjög flott
í leiðinni!!! Það sem sagt sést að ég hafi farið í klippingu.. Svo
var ýmislegt brallað, m.a fór ég í Kolaportið og vá hvað það er
gaman að skoða þar og gramsa Svo var mér boðið í mat í gær og
mmmmmmmmmmm kreisí góður matur Horfði svo á My best friends
wedding og það var mjög gaman Fór svo smá heim til pabba og
mömmu og svo fór ég og gaf Prins Mjá að borða, Arna og co eru
nefnilega fyrir norðan (heppin þau) og ég sé um kisustrákinn á
meðan Svo heim að sofa 
Sunnudagur: Vaknaði um 11.. Gott að sofa! Fór heim til pabba og
mömmu og þau voru reyndar fara austur á Fit en við Hrund grilluðum
okkur BBQ svínahnakka í hádeginu og tókst okkur svona afbragðsvel
til Erum ekki dætur pabba fyrir ekki neitt! Hehe.. Hann er nátla
BARA snillingur þegar kemur að því að grilla eins og svo mörgu öðru
Smávegis Smáralindarversl en bara smá, ég reyndar keypti mér
í maarstelli sem ég er búin að vera lengi á leiðinni að kaupa, en
það var á 30% afslætti og ég fékk 10% afslátt ofan á það.. Geggjað
flott en plein samt, beinhvítt! Afmæli hjá Theu skvís tók við eftir
það og var gaman að hitta allt liðið Erum svo alveg nýkomnar
heim við Hrund en kvöldið er óráðið hjá mér fyrir utan að ég ætla í
bíó klukkan 22....
Jææææja, vona að þetta sé eitthvað að kæta lesendur mína 
Reyni að skrifa aftur fljótlega 
Ykkar einasta Eygló
»
06.05.2006 19:23:27 / glinglo
ÓGEÐSLEGA þreytt!!!!!!!!!......................
Allt kreisí í vinnunni! Undirmönnuð og læti¨Varð bara að setjast
niður í sekúndu og tjá mig!
Eyglóin sem nær varla andanum af þreytu.......
»
26.04.2006 17:24:33 / glinglo
Sá þetta í Séð og Heyrt og fannst þetta þvílíka snilldin! Ég
er búin að vera hálf týnd síðustu 10 daga.. Ekkert bloggað! Málið
er líka það að ég er ekki með netið heima hjá mér (bara af
slugsaskap í mér) þannig að ég get ekki bloggað hjemme pá! Þarf að
fara að bæta úr þessu!
Ég er hætt við í bili að kaupa mér aðra íbúð, ég á ca
2,4 milljónir eftir þegar ég er búin að borga allt niður og ég vil
ekki sjá verðbólguna éta það upp, ég verð allavega í Bláskógunum
þangað til í september! Þá er alveg spurning hvað maður gerir! Það
er svo margt sem mig langar að gera að ég er að springa!!!!
Húff..... Hef verið að skoða ýmislegt sem ég segi kannski frá
seinna en þetta kemur allt saman í ljós! Það er þannig séð ekkert
sem heldur mér í Reykjavík, jú auðvitað fjölskyldan en á maður
ekki að láta draumana sína rætast? Ég er nefnilega alltaf að fresta
því... Well, we'll see Ekki misskilja mig, auðvitað er það t.d
fjölskyldan mín sem dró mig suður! Ef ekki væri fyrir þau þá byggi
ég enn fyrir norðan!! Ég SAKNA
Akureyrar......
Er annars frekar hress bara.. Búin að vera með höfuðverk reyndar
í 3 daga en ég gæti haft það svo miklu verr svo að ég kvarta ekki..
Svo er svo margt að brjótast um í hausnum á mér þessa
dagana að ég held að ég hafi sjaldan hugsað svona mikið..
Rýkur úr hausnum á mér næstum... Hehe, hvað er að gerast? Er Eygló
farin að hugsa? Það kannski útskýrir höfuðverkinn!! Hehehehe...
Ég fékk sumargjöf frá mjög leyndum aðdáenda ég sem sagt
gaf mér geisladisk í sumargjöf! Ég meina einhver varð að sjá um
þetta... !! 
Ég veit ekki hvað ég ætti að segja ykkur fleira... Vinnan gengur
vel (segi ég það ekki í hverri færslu?) Ég er virkilega ánægð í
vinnunni og það er alveg æðislegt bara 
Þangað til 2008
Eygló ...................
»
16.04.2006 17:44:49 / glinglo
Jæja þá eru bara komnir páska! Ég vaknaði snemma í morgun, fór
aðeins heim til mín og sótti föt og e-ð, gisti sko hjá pabba og
mömmu því að ég nenni ekki alveg að vera ein um páskana... Pabbi og
mamma voru búin að fela páskaeggið mitt vel og vandlega og voru
vísbendingarnar skemmtilegar og erfiðar! Sem er mjög gaman og
kannski í stíl við aldurinn á manni! Hehemm... Við Hrund tókum það
sko ekki í mál að hætta þessum leik enda hefur páskaeggið okkar
verið falið svona síðan við vorum litlar! Gaman að því!
Við fórum áðan að heimsækja ömmu á Vífilstaði og það var
rosalega gaman að hitta hana.. Hún var hress og reytti af sér
brandarana, alveg að verða 85 ára konan!
Erum svo öll fjölskyldan að fara að borða saman eftir ca
hálftíma!
Það er beðið eftir tölvunni svo að ég segi bara Gleðilega páska
og hafið það gott 
Eygló
»
10.04.2006 22:01:43 / glinglo
Hef enga afsökun fyrir bloggleysinu undanfarið.. Hef einfaldlega
ekki nennt að gefa mér tíma í að skrifa! Hef verið upptekin við
eithhvað miklu skemmtilegra 
Þó hefur margt gerst og mikið gaman!
Litla hryllingsbúðin var svo mikil snilld að ég ætla aftur!! Ég,
sem er nú alveg þekkt fyrir hlátursköst, grét svo hrikalega úr
hlátri að fólk var farið að horfa á mig, svo á leiðinni heim í
bílnum hló ég hló svo að tárin láku niður kinnarnar... Oh hvað það
er gaman að hlæja! ég held líka að það hljóti að vera að ég verði
200 ára, allavega ef miðað er við að hláturinn lengi lífið!! Bara
gaman sko!
Akureyrarhelgin var ein sú skemmtilegasta hingað til enda ekki
annað hægt þegar maður hittir Helgu Maren og Sólveigu.. Mizz U
beibz.... Ég skrifaði líka undir kaupsamninginn af íbúðinn minni..
Snökt, pínu leiðinlegt en ég finn aðra flotta hér fyrir sunnan! Það
bara hlýtur að vera.... Nú er ég bara ýkt rík... Hehehehehe
Vinnuvikan var bara fín... Ekkert merkilegt gerðist en allt gekk
bara eins og venjulega : VEL 
Helgin var snilld! Ég byrjaði á að fara smá í bæinn með mömmu,
vorum bara 2 og það mjög skemmtilegt að fara svona í bæinn Svo
bauð ég öllum í fjölskyldunni, pabba, mömmu, Írisi, Karlott, Petru
Rut, Katrínu Töru, Örnu, Davíð, Daníu Rut, Söru Ísold, Þóreyju Erlu
og Hrund í mat Ég fékk að halda matarboðið heima hjá pabba og
mömmu því að annars hefði ég þurft að hleypa inn í hollum heima hjá
mér Pabbi var svo frábær að hjálpa mér að elda og mamma hjálpaði
mér líka... Ég bauð þeim uppá lambahrygg og með því eins og við
fengum alltaf í gamla daga.. Ég vildi hafa þetta eins og í
minningunni þegar við systurnar hlupum heim úr sunnudagaskólanum og
þá beið okkar alltaf steik og hrikalega góður matur.. LAmbahryggur,
með kartöflum og brúnni sósu, ORA gulum baunum (mjög nauðsynlegt)
og rauðkál... Mmmm.. Geggjað gott, svo var ís í eftirrétt....
Slúrp..... Ótrúlega gaman að hittast svona öll enda er
fjölskyldan mér mjög dýrmæt eins og þeir sem mig þekkja vita Oh
væmni væmn...
Í gær var afmæli hjá afa en hann varð 67 ára! Alltaf gaman þegar
við hittumst stórfjölskyldan og þá er alltaf rabbað um allt og
ekkert og bara stemning sko 
Var svo bara að koma til pabba og mömmu til að blogga og er svo
að fara heim að horfa á Lost... Geðveikt skemmtilegir þættir!!
Jæja.. Ég vona að þetta kæti ykkur mínu kæru lesendur 
Love U all Ykkar Eygló.....
»
01.04.2006 19:42:14 / glinglo
Lenti í snjóbænum ógurlega í gærkveldi um 18:15!
Sólveig sæta sótti mig og fór ég til hennar og var þar til ca 22..
Helga Maren þurfti að fara og vinna á Tommunni (besti pizzastaður á
landinu) staðsettur á Dalvík.. Hitti hana og Ögmund hennar svo
seinna um kvöldið! Mikið var nú gaman að hitta þau og hana Sólveigu
mína
Við spjölluðum og horfðum á misskemmtilegt sjónvarpsefni! Fengum
okkur hrökkbrauð og höfðum það kósý! fórum að sofa um hálf tólf
enda var ég e-ð fáránlega þreytt og sybbin!
vaknaði um hálf 8 en sofnaði aftur og fór á fætur rúmlega 10.. Mmm
maður sefur alltaf vel á Akureyri. Hehe...
Fórum svo að drattast í bæinn um hádegisbilið og við byrjuðum á að
fara aðeins í Glerártorg.. Þar keypti mér mjög flott og fallegt úr!
Er alveg BRJÁLAÐ ánægð með það.. Fáið að sjá þegar ég kem suður..
Fórum svo og sóttum Mrs. Sleeping beauty, öðru nafni Sólveig 
fórum aftur á Glerártorg og þar fórum við og fengum okkur crépes..
Mmm ótrúlega gott! Og við vorum líka að halda upp á daginn því að :
****Helga Maren og Ögmundur voru að trúlofa sig****
Innilega til hamingju með það litlu dúllur.. Gaman að sjá hvað þau
eru ástfangin og ánægð með hvort annað
Kíkti í Centro og keypti mér einn bol þar.. Bleikan, flottur í
sumar
Næst lá leiðin í Hagkaup þar sem ég ætlaði að kaupa mér ilmvatn!
sem var svo ekki til  Mig sem var farið að hlakka svo til að
sprauta lyktinni á mig.. Sjúkt góð lykt sko!  Keypti mér pepsi
max í staðinn og sprautaði því á mig.. Hehe eða drakk það bara!
Fórum heim til Helgu Marenar og spiluðum rommí, það er ALLTAF svo
skemmtilegt.. að ég tali nú ekki um Yatzi!! Geggjað!
Er núna heima hjá Sólveigu, nýkomin úr sturtu og er að fara að hafa
mig til fyrir leikhúsið í kvöld  Erum að fara 3 vinkonurnar á
Litlu Hryllingsbúðina og það verður snilldin ein held ég! hlakka
MIKIÐ til...
Jæja ætla að fara að halda áfram að njóta lífsins
Lov U all elskurnar mínar ...
Eyglóin ykkar ánægða
»
28.03.2006 18:59:38 / glinglo
Jæja þá er maður bara á leiðinni norður! Fer næsta föstudag og á
ég flug klukkan 17:15, ég er alveg masssa spennt og hlakka mikið
til að hitta öll yndin mín sem búa víst þarna norðan heiða..
Yndislegur staður! Við Helga Maren og Sólveig ætlum að fara og sjá
Litlu hryllingbúðina og vá hvað það verður örugglega skemmtilegt!
Miðinn reyndar frekar dýr, 3500 kall en fyrir milla eins og mig er
það ekkert mál.. Oj ælum á mig sko! Ég ætla nú samt að halda uppá
söluna með því að versla aðeins og hafa gaman, ætla að kaupa mér
alvöru armbandsúr (ekki e-ð drasl því ég fæ alltaf ofnæmi undan
því) og e-ð af fötum og svona... Bara gaman að því.. Kem suður
aftur á mánudeginum og fer næstum beint í vinnuna.....
Vinnan gengur vel 
Er í miðju greiðslumati, ég var alltaf að bíða eftir að það yrði
hringt í mig og mér tjáð hversu hátt greiðslumat ég fengi! Nei nei,
ég gleymdi (er aldurinn að færast yfir eða hvað) að senda 3 síðustu
launaseðla og staðfestingu á laununum mínum í Nóatúni með í
greiðslumatið, þannig að þetta er allaveg komið á skrið núna!
Gleymna Eygló sko! Ég er búin að fara og skoða held ég 6 íbúðir,
búin að skoða allar í heiminum finnst mér á netinu og mér
finnst ekkert ganga, er hálf vonlaus á að ég finni einhverja
æðislega íbúð sem hentar mér.. EN það hlýtur að
koma...
Tók mig til í gær og breytti helling heima breytti
alveg herberginu og svo e-ð smá í stofunni, færði allavega til
bongótrommurnar mínar og afríkudótið og breytti á stofuborðinu og
mikið gladdi þetta mig þegar ég var búin! Ekkert smá fínt og flott
breyting, svaf meira að segja x-tra vel með rúmið svona.. Eins og
það skipti einhverju.. Hehe.. Fann líka fullt af gömlum e-mailum
og bréfum frá gömlum vinum og það var svo fyndið að lesa það, hvað
maður getur stundum verið mikið fífl... Hehe....
Jæja nóttin er ung og ég ætla að fara að bralla e-ð....
Eyglóin sem veit ekki alveg í sinn haus...
»
23.03.2006 20:11:24 / glinglo
Ég veit ekkert hvað ég ætti að segja hérna.. Ég er búin að skoða
held ég 6 íbúðir og ekkert gengur.. Skoðaði eina í gærkveldi sem
mér líst rosalega vel á, uppsett verð er 17 milljónir sem ég ætti
alveg að ráða við en ég vil samt ekki sprengja mig alveg og
geta þá aldrei leyft mér neitt! Æ ég hlýt að detta niður á
einhverja íbúð.. Málið er líka að það eru ekki mikið ódýrari íbúðir
til sölu nema þá þær sem eru óaðlaðandi eða eitthvað
leiðinlegra...
Well... Ég er að fara á fund niðrí vinnu en þarf að taka bensín
fyrst!
Kveðja Eygló íbúðarleitandi............... 
»
19.03.2006 15:50:27 / glinglo
Jæja, þannig fór nú með Suðurhólana! Ásett verð var 16,9. Ég
bauð þeim 16,6, yfirtaka lánið þeirra og borga 2,3 millur út en þau
höfnuðu því ! En fasteignasalinn sagði mér nú að ég mætti alltaf
gera annað tilboð.. En nei þetta var mitt boð og það nær ekki
lengra! Ég er búin að finna aðra æðislega íbúð, hún er í Berjarima,
það er líka sett á hana 16,9, hún er 67 fm2, 2ja herbergja en verið
er að innrétta 16 fm2 herbergi í risinu sem kæmi sér vel sem
gestaherbergi! Risherbergið er ekki talið með í fermetrafjölda
Hússjóður borgar fyrir þrif á sameign og slátt og allt svona! Ég
ætla að hringja á morgun í fasteignasalann og fá að koma og
skoða!!! Ef þið viljið skoða farið þá inná habil.is og gerið leit
eftir götuheiti, veljið þar "berjarimi" og veljið svo "leita" þá
koma upp nokkrar íbúðir í Berjarima og það er sú efsta!!!! Klikkað
flott og æðislegt baðherbergi!
Lítið annað er svo sem að frétta! Ég fór í afmæli til Söru
Ísoldar og barnablessun til Þóreyjar Erlu í gær og það var alveg
æðislegt! Rosalega flott veisla og skemmtilegt fólk! Gaman að hitta
Línu og Sölku Rut en Lína er einmitt ófrísk og gaman að sjá hana
með kúlu en ég missti alveg af því að sjá hana ófríska af Sölku
Rut!
Jæja! Ég er að pæla í að kíkja á samkomu á eftir en er þó ekki
alveg búin að ákveða það! Ég fór í gær á sameiginlega
unglingasamkomu og það var mjög gaman og ég var meira að segja ekki
alveg elst!!! Hehe
Eigið gríðarlega góðan eftirmiðdag og gott kvöld!
Njótið svo lífsins elskurnar mínar 
Lotz off Loov.. Eyglóin 
»
16.03.2006 20:50:13 / glinglo
Ég er búin að finna draumaíbúðina mína!! Svo falleg og með
æðislegu útsýni og ég hreinlega féll í yfirlið þegar ég fór og
skoðaði hana áðan klukkan 19!! Hún er 3ja herbergja og 91 fm2 með
geymslunni!!! Hún er í Suðurhólum og ég ætla að hendast í
greiðslumat í fyrramálið og reyna að tryggja mér hana! Hún er
eftirsótt og það getur vel verið að hún verði seld fyrir helgi!!
Vooooonandi ekki samt! Verð þá svolítið mikið spæld! En það verður
þá bara einhver önnur! Allavega, ég fór í gær og skoðaði aðra en
hún er sett á 15,5 millur en "mín" á 16,9 og það er varla hægt að
bera þær saman!!! Svo mikill er munurinn á glæsileikanum!
Anyways! Uuuu veit ekki alveg hvað ég að segja meira! Vinnan
gengur ofsalega vel og ég verð ánægðari með hverjum deginum!!!

Júts auðvitað! Við Arna héldum uppá afmælið okkar síðasta
laugardag og það var ÆÐI!!!! Fjölskyldan mætti og samgladdist okkur
og þetta var þvílíkt kósý og æðisleg stund! Ég fékk margt fallegra
gjafa og það var gaman! Mér finnst sko rosalega gaman að fá pakka
sem og að gefa gjafir! ÆÐI ÆÐI ÆÐI !!!!!!!!!!!!!!!
Jæja ég ætla að fara að innrétta íbúðina í huganum!
****DJÓK****
Eða sko... Hehe
Eigið notalegt kvöld elskurnar mínar 
Eyglóin ykkar! sem er svo spennt að hún er með
aukahjartslátt!!!!!
»
10.03.2006 18:24:53 / glinglo
..Þá græt ég úr GLEÐI þessa dagana!!!! Ég er
svo að springa úr ánægju og gleði að ég næ varla andanum sko! Ég er
búin að selja íbúðina mína!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Fékk tilboð uppá 9,8
fyrr í vikunni en ég vildi fá 10,2 fyrir hana svo að ég beið í 2
daga og fékk þá annað tilboð (frá sömu stelpu) uppá 10,2 ég
öskraði næstum úr gleði þegar ég skrifaði undir kauptilboðið áðan!
Ég keypti þessa glæsilegu, litlu og kósý íbúð fyrir ári síðan, og
hún hefur hækkað svona gríðarlega! á ekki lengri tíma! Mikið er það
nú ánægjulegt! Svo er ég komin á mun betri laun en þegar ég var í
Hagkaup! Þá er bara að fara í annað greiðslumat og kaupa aðra sæta
íbúð hér fyrir sunnan, hugsa að Grafarvogurinn verði fyrir valinu!!
Stutt í vinnuna og svoleiðis!!
Vinnan gengur annars alveg eins og í sögu! Ég er SVO ánægð þarna
að það er hálfótrúlegt! Ég er komin í helgarfrí núna til kl 14 á
mánudaginn!! SWEET Við Arna erum svo að fara að
halda uppá afmælið okkar annað kvöld, og ég get ekki sagt annað en
að ég hlakka mikið til 
Jæja ætla að hafa það alveg gríðalega kósý um helgina og njóta
þess að halda upp á afmælið og svona!
Hafið það ofsalega gott og verið blessuð 
Ykkar Eygló milli ...................
!!!!
»
06.03.2006 19:16:34 / glinglo
Var að vinna bókstaflega ALLA helgina, 9-21:30 á laugardaginn og
10-21:30 á sunnudaginn!!! Það var líka þreytt Eygló sem heimsótti
foreldra sína í gærkveldi.. Ég hafði verið að vinna þarsíðustu
helgi í Hagkaup og var því að vinna dag númer 14 í röð í gær.. En
ég svaf út í morgun (eða svona næstum því) til 10 sko... Það gengur
að mínu mati rosalega vel í vinnunni og ég er búin að læra alveg á
uppgjörið og skiltagerð og fleira! Þetta var skemmtileg helgi og ég
hafði gott af því að vera svona ein með búðina! Alltaf þegar ég
vinn helgi á ég frí á mánudeginum sem er þvílíkt notalegt að fá smá
hvíld og útrétta og svona!
Ég heimsótti ömmu og Ella Gitta var það ásamt Karen Erlu
yndigulli, bara sæt sko amma var að þrengja fyrir mig buxur
og það var rosalega gaman að hitta þær mæðgur Var svo komin til
Írisar klukkan 2, passaði fyrir hana í smástund meðan hún fór á
foreldrafund en svo var hún að hjálpa mér að hlaða inn lögum á mp3
spilarann minn Er komin með 95 lög og get svo alveg sett
hellings í viðbót ef ég vil, ég þarf nú líka að fá mér netið en það
verður vonandi næstu mánaðarmót sem ég drífi í því að fá mér adsl..
En þetta er alger snilld! Að það sé hægt að setja fullt af lögum
inn á svona lítið tæki, maður stingur því svo bara í vasann og það
sést ekki einu sinni! LOVE IT!!!!! Hey svo þegar ég var hjá
Írisi þá FANN ÉG JARÐSKJÁLFTA!!!!!! Það er eitt það skemmtilegasta
sem ég veit! Alveg magnað fyrirbæri!!! Og þrumur og eldingar!! jæja
ég ætla að hætta áður en ég einhver fer að halda að ég sé skrýtnari
en ég nú þegar er!! Hehe..
Gleymdi að segja frá því í síðasta bloggi hvað ég fékk í
afmælisgjöf frá Örnunni minni! Ég fékk rosa flotta rauða, rennda
hettupeysu, svartan polobol, netaskó og bolla sem á stendur
"Heimsins besta systir" Aawwww.... geggjað sætt og flott
Takk æðislega Arna mín 
Ætla að enda á að linka inn á eina sætustu sögu sem ég hef
lesið... Endilega lesið og bara vá ég fékk tár í augun... 
erlingm.blogspot.com
Njótið vel og verið blessuð mínir kæru lesendur Ykkar
einasta Eygló
»
02.03.2006 21:10:05 / glinglo
... Við eigum afmæli í dag!! Þær eru 25 í dag, þær eru
25..............
Mikið rosalega finnst mér gaman að eiga afmæli! Ég er orðin 25
ára og er samt alltaf svo mikið afmælisbarn, ég þarf ekki að hugsa
lengi til að fatta hvaðan ég hef það en hún mamma mín er líka svona
þannig að like mother like daughter... Hehe..
Dagurinn er búinn að vera rosa skemmtilegur.. Ég var að vinna
til hálf 5.. Fór þá heim til pabba og mömmu.. Þar var Hrund heima
en svo fljótlega fóru pabbi og mamma að tínast inn... Ég fékk FULLT
af sms-um í dag frá fólki sem var að óska mér til hamingju með
daginn! Lína, Helga Maren, Íris, Ella Gitta, Arna. Sonja, Sólveig,
Hrund, takk fyrir að muna eftir mér... Svo fékk ég fullt af
kommentum sem alltaf gleðja mig! Anna Sigga yndið mitt var svo
sniðug að kvitta í gestabókina og það hverfur nebbla ekki með
færslunni.. Takk Anna Sigga mín 
Mamma ákvað að hafa svona skemmtilegan kvöldmat útaf afmælinu og
gerði svona heit rúllutertubrauð og uppáhalds SÚKKULAÐIKÖKUNA
mína!! Heyrðu, svo fer dyrabjallan að hringja grunsamlega oft og
áður en ég veit af eru Íris, Karlott, Petra Rut, Katrín Tara, afi,
amma, Ella Gitta, Ketill, Róbert Örn og Karen Erla mætt á svæðið
til að samfagna mér! Ji hvað mér þótti vænt um það!! Mamma hafði
þá skipulagt það að allir kæmu Takk mamma, þú ert ÆÐI
Pabbi hélt smá ræðu en þar sem þetta var bara svona smá afmæli og
risaafmælið er eftir og að Arna er fyrir norðan þá verður ræðan
endurtekin í afmælinu 11.mars.... Ég fékk pakka frá pabba og mömmu
og viti menn!!!
***ÉG FÉKK MP3 SPILARA***
Alveg þvílíkt nettan og flottan.. Þá er bara að
hlaða lögum inn og fara að hlusta! TAKK ÆÐISLEGA fyrir mig pabbi og
mamma Elska ykkur grilljón mikið Og takk fyrir óvæntu
afmælisveisluna.. ´
Vinnan gengur annars alveg stórvel.. Var að gera
uppgjörið í morgun og átti að skrifa dagsetninguna utan á
peningapokann, ég geðveikt vön og skrifaði 020381... Átti auðvitað
að enda á 06 en ekki 81 sem er árið sem ég fæddist EN mér fannst
það bara fyndið!! En ég á að mæta klukkan 14 á morgun svo að ég get
sofið út... Mmmm
Svo er bara vinna vinna vinna um helgina......
Hafið það ofsa gott og takk þið sem munduð eftir
mér!
Ef þið viljið sjá íbúðina mína fyrir norðan þá er
hún komin á sölu á byggd.is og er Skarðshlíð 13 og er á 10,5
millur! Endilega skoða 
Eyglóin 25 ára 
»
25.02.2006 22:30:14 / glinglo
Ég var eitthvað voða utan við mig þegar ég var að keyra áðan..
ég fattaði nebbla þegar var að koma rautt ljós að ég hafði
stoppað á grænu! Voða hugsi gella eitthvað!
Ég fór áðan í Nóatún til að fá peysu og skoða búðina og spjalla
við verslunarstjórann, ég fékk líka vaktaplan og þetta leggst alveg
rosalega vel í mig og ég er rosa spennt fyrir mánudeginum! Þetta
verður eflaust mjög skemmtilegt og gaman síðasti
vinnudagurinn minn í Hagkaup er á morgun og það verður eflaust
pínu skrýtið að labba þaðan út og þurfa ekki að mæta þangað daginn
eftir! Kannski verður þá einhvern tímann skemmtilegt að fara í
Smáralind? Hver veit??
Íbúðin mín er ekki enn komin á sölu en hún fer að detta inn
hlakka til að selja hana, eða sko eiginlega ekki, vildi að ég gæti
átt hana áfram en samt keypt mér íbúð hér fyrir sunnan! En það er
ekki alveg að ganga!!
Annars er bara gott að frétta! Verð 25 ára eftir 5 daga og ég
verð að vinna morgunvakt á afmælisdaginn svo að ég get þó allavega
notið þess að eiga kvöldið í kósýheitum! Við Arna ætlum að halda
upp á afmælið okkar 11.mars því að ég verð að vinna næstu
helgi, fyrsta helgin mín serm vaktstjóri gaman að því!
Takk þið sem óskuðuð mér til hamingju með vinnuna í gegnum
comment!! 
Eygló
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|